Íslenska myndasögutímaritið Blek 20 ára!

Fyrsta tölublað BleksFyrir 20 árum var ég að vinna á grafíkdeildinni á DV sem sumarafleysingarmaður. Yfirmaður grafíkdeildarinnar var Ólafur Guðlaugsson. Einn daginn var hann með á skjá sínum næstum svarta forsíðu með rauðu, svo ég fór að spyrja hann hvað þetta væri því ólíklegt var að þetta myndi birtast í DV. Það kom í ljós að þetta var forsíðan á nýju íslensku myndasögublaði Hazarblaðið Blek, sem hann ásamt 10 öðrum stóðu í að gefa út.

Hann sýndi mér síðan myndasöguna sem að hann átti í blaðinu, Hamingjan. Einnar síðu myndasaga um leitina að hamingjunni. Einkar góð myndasaga, með á einnu síðu á gaman saman hátt sýndi hamingju í nútímanum.

Ég fylgdist aðeins með útgáfu blaðsins úr fjarska og keypti mér blaðið daginn sem að það kom út. Í blaðinu voru 11 íslenskar myndasögur eftir níu myndasöguhöfunda: Sigurður Ingi Jensson, Þorsteinn S. Guðjónsson, Jón Ingiberg Jónsteinsson, Erpur Þórólfur Eyvindsson, Bjarki Kaikumo, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, Ólafur Gunnar Guðlaugsson, Pétur Yngvi Yamagata og Ómar Örn Hauksson. Blaðið var í frekar stóru broti miðað við amerísk hasarblöð, ca. A4 og prentað á flottan pappír. Hið veglegasta blað.

Sögurnar voru féllu misvel að mínum smekk en þetta blað hafði samt töluverð áhrif á mig og fletti ég og las blaðið nokkuð oft þetta sumar. Fram að þessum tíma hafði ég teiknað örfáar stuttar myndasögur sem aðeins mjög þröngur vinahópur hafði séð en hafði svo sem hugmyndir um myndasögur. Þetta fyrsta blað af Blek gaf mér þá von að kannski gæti ég gert einhverjar af þeim hugmyndum mínum um myndasögu að veruleika og birt þær í íslensku myndasögu blaði! (Það var þó ekki fyrr en árið 2010 sem að fyrsta myndasagan mín birtist í Bleki).

Frá og með útgáfu annars tölublað var reynt að gera blaðið ódýrara í útgáfu og lækka verðið og var broti blaðsins breytt í týpískt amerískt hasarblaða stærð og prentað á ódýrari pappír. Blaðið kom út undir nafninu Blek til ársins 2005 og var útgáfan óregluleg eða þegar efni var nóg í eitt blað. Jean Posocco, sem hafði verið ein driffjöðurinn í útgáfu bleks frá og með öðru tölublaði, reyndi að blása nýju lífi í Blek með því að gefa það aftur út í stóru broti og reynt að gefa blaðið út einu sinni á ári. Árið 2010 reyndi Jean að blása enn meira lífi í blaðið svo og íslenskan myndasögumarkað. Blaðið kom út þrisvar til fjórum sinnum út á ári og innihélt þýddar franskar myndasögur með stökum íslenskum myndasögum.

NeóBlek 20 áraBlek heldur uppá 20 ára afmælið með útgáfu á 164 blaðsíðna blaði í veglegu broti, þar sem að flestir af þeim sem hafa teiknað fyrir blaðið eiga sögur og sýningu í Borgarbókasafninu Grófinni Tryggvagötu þar sem að farið er yfir feril blaðsins. Er sýningin bæði fróðleg og áhugaverð og ekki síður skemmtileg. Sýningin stendur yfir til 25. september og ætti fólk endilega að nýta sér tækifærið og skoða íslenska menningu eins og hún gerist best. Kannski rekist þið á myndasögu eftir mig á sýningunni, en allavega nóg af góðum myndasögum eftir þekktustu myndasöguhöfunda Íslands síðustu tvo áratugi.

 

Grein þessa er einnig að finna á heimasíðu minni: stefanljosbra.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband